Markmið og Tilgangur
Markmið og Tilgangur
ÍTF eru hagsmunasamtök þeirra félaga sem reka lið í efstu deildum karla og kvenna í knattspyrnu og hafa þau að markmiði eftirfarandi:
ÍTF eru hagsmunasamtök þeirra félaga sem reka lið í efstu deildum karla og kvenna í knattspyrnu og hafa þau að markmiði eftirfarandi:
- Að skapa félögunum sem best rekstrarskilyrði og stuðla að vexti og framgangi íslenskrar knattspyrnu. Forsenda þess er að metnaður verði lagður í að styrkja og bæta deildakeppni í knattspyrnu á Íslandi.
- Að verða viðurkennd af Knattspyrnusambandi Íslands og alþjóðasamtökum sem sá aðili sem kemur fram fyrir og ver hagsmuni knattspyrnufélaga á Íslandi.
- Að hagnýta réttindi, svo sem sjónvarpsréttindi, markaðsréttindi, nafnaréttindi deilda, sölu
auglýsinga og markaðsetningu fyrir þær deildir sem eiga aðild að ÍTF og ráðstafa þeim réttindum. - Að taka þátt í ákvörðunartöku er varða mótahald efstu deilda karla og kvenna í knattspyrnu
- Að miðla þekkingu til aðildarfélaga sinna.
- Að stuðla að samvinnu ÍTF og KSÍ að öllum málum er snúa að félögunum og hagsmunum þeirra.
- Að verja hagsmuni aðildarfélaga varðandi notkun annarra aðila á nafni, merki og öðrum réttindum félaganna.
ÍTF skal vinna að þessum markmiðum í samvinnu við Knattspyrnusamband Íslands, alþjóðleg knattspyrnusambönd, erlend samtök knattspyrnuliða og önnur knattspyrnufélög í landinu.
Fjárhagslegur ávinningur af starfi samtakanna skal skila sér til aðildarfélag ÍTF á hverju rekstrarári eins og frekast er kostur.
Það rúmast innan þessara markmiða og tilgangs að ÍTF stofni rekstrarfélög, eftir atvikum í samstarfi við aðra, um tiltekna þætti.