Sáttmáli aðildarfélaga ÍTF
Aðildarfélög ÍTF samþykkja eftirfarandi sáttmála sín á milli:
- Að vera ekki aðili að öðrum samtökum knattspyrnufélaga í efstu deildum karla og kvenna að KSÍ undanskildu
Að greiða árgjald samtakanna
- Að vera virkur meðlimur og taka þátt í ákvarðanatöku samtakanna
- Að vinna að heilindum með ÍTF og aðildarfélögunum og sýna aðilum virðingu í samskiptum
- Að leita leiða innan ÍTF til málamiðlana og lausna ef ágreiningur hvers konar kemur upp á milli aðildarfélaga
- Aðildarfélög skuldbinda sig til að hlíta ákvörðunum félagsfunda og starfa í samræmi við ákvarðanir félagsfunda
- Aðildarfélög leita til stjórnar ÍTF og félagsfunda eftir aðstæðum varðandi meðferð vörumerkja félaganna og skulu hagsmunir heildar hafðir að leiðarljósi