ÍTF auglýsir eftir framkvæmdastjóra

2019-07-03T13:58:24+00:0003.07.2019|

Íslenskur Toppfótbolti, (ÍTF), auglýsir eftir framkvæmdastjóra í fullt starf. ÍTF samanstendur af félögum sem reka lið í efstu deildum karla og kvenna í knattspyrnu. Framkvæmdastjóri hefur m.a. umsjón með daglegum rekstri ÍTF, sinnir markaðsstarfi, áætlana – og samningagerð vegna sjónvarps- og markaðsréttinda og er í samskiptum við hagsmunaaðila, s.s. aðildarfélög, KSÍ, fjölmiðla og aðra samstarfsaðila.