Íslenskur Toppfótbolti, (ÍTF), auglýsir eftir framkvæmdastjóra í fullt starf. ÍTF samanstendur af félögum sem reka lið í efstu deildum karla og kvenna í knattspyrnu.

Framkvæmdastjóri hefur m.a. umsjón með daglegum rekstri ÍTF, sinnir markaðsstarfi, áætlana – og samningagerð vegna sjónvarps- og markaðsréttinda og er í samskiptum við hagsmunaaðila, s.s. aðildarfélög, KSÍ, fjölmiðla og aðra samstarfsaðila.

Hæfniskröfur:
– Menntun sem nýtist í starfi
– Samskiptahæfileikar og reynsla af rekstri
– Góð enskukunnátta
– Þekking og reynsla í íþróttaumhverfinu
– Þekking og reynsla af samningagerð
– Þekking á regluverki knattspyrnuhreyfingarinnar
– Ódrepandi áhugi á fótbolta
– Hreint sakarvottorð

Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst. Áhugasamir skili inn umsókn með ferilskrá á netfangið
itf@toppfotbolti.is í síðasta lagi 20.júlí n.k.