Undirritaður hefur verið samstarfssamningur milli KSÍ, ÍTF og Pez ehf. um smíði og þróun snjallsímaforrits með upplýsinga- og miðasölulausn sem hægt er að nýta fyrir leiki í efstu tveimur deildum karla og kvenna – Pepsi Max deildum og Inkasso-deildum.  Appið er í tveimur hlutum – annars vegar upplýsingahluta sem snýr að leikjadagskrá liða, einstaka viðburðum og ýmsum öðrum upplýsingum, ásamt tilkynningum – en hins vegar miðasöluhluta sem snýr að sölu á stökum miðum, ársmiðum, birtingu á aðgönguskírteinum KSÍ og þess háttar.

Með appinu er leitast við að auka verulega þjónustu við áhugafólk um íslenska knattspyrnu, auka samskiptin milli félaganna og stuðningsmanna, og auðvelda og einfalda verulega miðakaup á leiki deildanna.  Í
markaðsrannsókn sem KSÍ lét vinna haustið 2018 kom m.a. vel í ljós að stór hluti áhugafólks um íslenska knattspyrnu hefði áhuga á að nota app til að fylgjast með og fá upplýsingar um leiki, auk þess að nota app eða aðra rafræna leið til að kaupa miða á leikina.  Umrætt upplýsinga- og miðasöluapp er svar við þeirri niðurstöðu.  Í appinu mun hver notandi geta sniðið viðmótið eftir sínu höfði og merkt það með litum og merki síns félags.

Appið sjálft, virkni þess og eiginleikar, verður kynnt nánar síðar, en áætlað
er að það verði tilbúið til notkunar um miðjan apríl.